02.06.2007 10:05:19 / sollak
Hihi!
Já og á hamingjusömu nótunum... svona úr því ég er hér inni!
BJÖRG & ÁGÚST OG
KATRÍN & TÓTI EIGA VONA Á
BARNI!!!
Til hamingju enn og aftur elsku
vinir!
Því er bleikt hamingju ský
á sveimi yfir vinahópnum!!!!
Reyndar missum við af 2 mánuðum í bumbuvexti hjá Björgu og Ágúst
því þau eru að fara til Danmerkur og Ítalíu í DAG. En þau erum búin að lofa að
senda full af myndum! Ekki satt Björg...?
Jæja... NÚNA ER ÉG FARIN Í STURTU
»
02.06.2007 09:58:43 / sollak
Kiddi og Helga eru að fara að gifta sig í dag sem er þvílíkt
gleðiefni að ég hélt að það myndi yfirgnæfa allt sem hugsanlega
gæti gengið á! En.... greinilega ekki! Hvað haldiði að ég hefi
reynt að gera í gær? ÉG SETTI Á MIG BRÚNKUKREM!!!! Hvað var ég að
hugsa. Viktor spurði mig meira að segja: Ertu viss um að þú viljir
taka áhættuna? Og ég, þrátt fyrir að ár séu liðin frá
brúnkukremsásetingarhæfileikatímabilinu mínu, ákvað að slá til!
MADRE MIA!! Við erum að tala um disaster!
Og glæsileiki fallega kjólsins (sem ég og Björg skeggræddum um í
langan tíma), skónna (Balenciaga, peeptoe undursins) og veskisins
(sem viktor keypti handa mér alveg sjálfur... með hjálp Magga í El
Corte Ingles) mun hugsanlega verða aðeins minni fyrir vikið!!
Vitlaus er ég!
Jæja best að fara í sturtu!
»
27.05.2007 10:57:13 / sollak
Ég vaknaði áðan.
Fór fram og bjó mér til hafragraut, sótti moggann og kom mér
fyrir upp í rúmi.
Fallegur sunnudagsmorgun. Algjör þögn... fyrir utan nokkra fugla
sem ég held að hafi verið að semja fallega symphoníu bara handa
mér. Ég hugsa með mér: Ohh hvað er yndislegt að fá svona rólegan
morgun áður en sumartörnin byrjar.
EN NEI!!!!
Allt í einu byrjar þetta hræðilega hljóð: skvúsh, skvúsh,
skvúsh...!!! NEIiiiiiiii! Trampolínbörnin í næsta húsi eru komin á
kreik!! Stundum held ég að þau séu andsetin einhverjum hræðilegum
trampolínanda sem vill ekki leyfa þeim hætta fyrr en það sé víst að
ég sé svona nokkurnvegin farin af taugum!
Hvað er til bragðs að taka? Var nokkuð ráðuneyti stofnað eftir
nýafstaðnar kosningar sem hugsanlega tæki á móti kvörtunarbréfum?
Trampolínmálaráðuneyti?
»
14.05.2007 22:08:48 / sollak
Til að vera hipp og kúl en þó mest megnis til þess að geta
skoðað síður hjá öðrum hef ég ákveðið að búa til myspace reikning!
Það er þó að reynast hægara sagt en gert! Því svo virðist vera að
allar sollur í heiminum eigi einn slíkan og þar að leiðandi eru öll
notendanöfn sem tengjast mínu nafni upptekin!!!
Ég hef því ákveðið að gera annað af eftirfarandi:
a) breyta nafninu mínu í eitthvað einstakt sem engin hefur áður
notað
b) finna eitthvað hræðilegt myspace-fang eins og t.d
myspace.com/zzzzzzzzzzzzzzzzzzzups
Allavega....!! Þegar ég verð komin með þetta þá verða allir sem
eru með myspace að vera vinir mínir! Því þó svo að þessi Tom sé
eflaust fínn gaur (halló maðurinn fann þetta nú einu sinni upp) þá
einhvernvegin sé ég ekki fram á það að hann hafi tíma aflögu til að
commenta á hversu ógeðslega flott síðan mín er
Næst á dagskrá í okkar lífi eru svo auðvitað MADRID!!! Jeyyyy!
Bara 3 dagar!!!
Látið nú heyra í ykkur!!! Ég er orðin soldið einmanna hérna
inni! ;O)
»
23.04.2007 21:07:58 / sollak
Þau Íris og Guðni eru búin að eignast stelpu!!!
Til hamingju elsku vinir!
Litla snúllan var allt of mikið að flýta sér í heiminn og var
því aðeins 3,6 merkur! Mamma hennar hefur nú alltaf mætt tímanlega
á alla þá staði sem við höfum mætt á saman en rúmir 2 mánuðir er nú
kannski aðeins of snemmt
En nú þarf litla prinsessan soldin tíma
til að fá að stækka. Af myndunum að dæma þá er nú frekar mikill
töggur í henni og það ætti því ekki að taka langan tíma!
Allt fínt að frétta annars!
»
12.04.2007 14:00:45 / sollak
Hún þarf nú ekki að vinna neina keppni að
okkar mati þar sem hún er alltaf sætust!!
Gangi þér vel Olga Ósk!
»
10.04.2007 20:17:44 / sollak
Fyrir um fimm mínútum síðan snerum við til baka úr Ikea þar sem
við vorum að kaupa gardínur í sólskálann! Bara svona nokkrar
gardínupjötlur til þess að hægt sé að ganga um nakinn eða hægt að
horfa á sjónvarpið án þess að nota sólgleraugu! Við ákváðum að slá
um okkur og að borða úti í leiðinni (á veitingastaðunum í IKEA
semsagt) Mmmm... Ikeakjúllinn er alltaf góður! Og þá komum við að
því það sem þetta blogg snýst í alvöru um:
ÞAÐ VAR ÓLÉTT KONA AÐ DREKKA BJÓR Á VEITINGASTAÐUNUM Í IKEA!
Ég á bara ekki til orð! Þarna með mann og barn sat ólétta konan
og þambaði bjór! Ég veit manni kemur þetta ekkert
við og ég veit sjálf um konur sem hafa fengið sér sopa
af bjór eða hvítvíni þegar þær hafa verið óléttar og þær eiga
yndisleg börn! En það er eitthvað sem lætur mann fá sjokk við
að sjá kou með kúluna út í loftið sitjanid með áfengi!
Húmorinn í þessu liggur sennilega í því að hún hafi þorað að
sitja ólétt með bjórinn sinn innan um allar mömmurnar í IKEA sem
horfðu á hana með illum augum! En það sem er sorglegt við þetta er
að maðurinn hennar fékk sér líka bjór! Og þau voru með litlu
stelpuna sína í Ikea! Líkur eru á að þau komu keyrandi!!! Hvað með
barnið og alla hina í umferðinni! ÞAð kemur mér við er það ekki?
»
09.04.2007 21:24:43 / sollak
Hæ!
Hef reynt að henda inn nokkrum færslum hér af og til en þetta
asna blogg virkar ekki í 99% tilvika! Vonum bara að þetta komist
áleiðis!
Páskarnir hafa verið frábærir! Nóg að gera en samt smá tími til
að slappa af! Við skelltum okkur tildæmis á Blúshátíð á fimmtudag
með Magnúsi og það var í einu orði sagt GEGGJAÐ! Sora Yong var
alveg að gera sig og svo ég tali nú ekki um alla hina! Fórum
reyndar svo á Domo sem var mjög skemmtilegt þar til listakonan
Didda ákvað að skella sér upp á svið dauðadrukkin að reyna að
blúsa! Já maður fékk verulega kjánahroll og ég trúi því að hún hafi
vaknað upp daginn eftir á miklum bömmer!
Svo á föstudag var mjög skemmtilegt partí hjá Kidda og Helgu þar
sem farið var í lagaspunaleiki og lagðar inn pantanir fyrir
Cosmopolitönum! Ha!
Við misstum reyndar af vinahitting á laugardagskvöldið þar sem
við vorum í dýrindis mat hjá Klöru mömmu en þau vonandi fyrirgefa
okkur það og vilja hitta okkur aftur í framtíðinni! Ef það er
einhver huggun þá dreymdi mig trúlofunarhringana ykkar Katrín og
Tóti um nóttina enda hafði Halla lýst þeim fyrir mér í "díteils"!

Næstu dagar ættu ekki að vera leiðinlegir enda styttist óðfluga
í Ungfrú Reykjavík þar sem Olga Ósk mun koma fram; gullfalleg, í
gullfallegum kjól og á hælum sem hún á strax verðlaun skilið fyrir
ganga á (við erum að tala um ROSA HÁA hæla)!! Já og við
verðum á Broadway og hvetja hana áfram.
Jæja! Best að hafa þetta ekki lengra í bili!
Látið heyra í ykkur!
»
21.03.2007 22:17:04 / sollak
Sit hér heima og horfi á vonda mynd á TVE, reyni að lesa, reyni
að horfa á sjónvarpið, reyni að lesa, reyni að horfa á sjónvarpið.
Ekkert gengur! Ég er með kvef og það er að eyðileggja
einbeitninguna mína!
Frá því að ég bloggaði síðast þá hefur ýmislegt á daga mína
drifið! Sennilega þó ekkert sem þið vitið ekki um þar sem ég trúi
því sterklega að sama fólkið lesi síðuna mína dag eftir dag. Og það
fólk hitti ég líka reglulega. ÞAnnig ég ætla ekki að eyða miklum
tíma í að þylja upp hvað ég er búin að vera að gera! Ég ætla samt
að segja ykkur hvað mig langar að gera! ÞAð ætti ekki að koma ykkur
á óvart: Mig langar til útlanda!!! Og því erum við jafnvel að hugsa
um að bregða okkur til UK áður en sumarið gengur í garð! Nú þarf ég
bara að eignast pening! Eruð þið með einhverjar hugmyndir um
hvernig ég eigi að gera það???
»
31.01.2007 16:13:59 / sollak
Fingurnir færast hægt yfir lyklaborðið.
"Hvar er aftur Ð" spyr
takkaminni heilans.
"Hverjum er ekki sama" svarar minnið í heilanum sem vill bara horfa
á sjónvarpið enda er það úr æfingu og vill núna bara fá að njóta
þess að vera í notkun eftir leiðinleg b.s rigerðarskrif.
"Bíddu fimmtíuogein heimsókn í dag" hrópar staðurinn í heilanum sem
segir aldrei neitt nema þegar ég er búin að fá mér kaffi (ég var að
klára kaffi latte í götumáli. Götumál! Ég elska þetta orð). Ætli ég
kalli þann stað ekki bara koffínörvuðu stöðina.
Og núna er ég farin að skrifa.
Veit ekki hvort að það endist eitthvað.
Við skulum sjá til.
»
26.12.2006 16:32:15 / sollak
Ég sem hélt að allir væru
hættir að skoða bloggið! Svo asnast ég hér inn á annan í jólum
og þá er ég búin að fá 15 heimsóknir! Gæti verið að þetta sé
allt saman hún Deb að sýna fólki myndir (hún er að koma á
föstudaginn) en ef ekki vil ég segja við ykkur þrjósku
blogglesendur "gleðilega hátíð og hafið það sem allra
best!".
Hver veit svo nema fleiri
blogg berist einhvertíma þegar b.s druslan er tilbúin
»
01.10.2006 18:40:57 / sollak
Og ég nenni ekki að læra!
»
29.09.2006 15:43:57 / sollak
... hvað ég ætlaði að segja
ykkur!
Ég er ansi viss um að ég á heima
í mörgum markhópum enda er ég kvenkyns, nemandi, húseigandi,
bílaeigandi og ýmislegt fleirra sem nauðsynlegt er að miða inn á
þegar verið er að selja hinn margvíslega varning. Við erum öll
partur af einhverjum markhóp en stundum er bara spurning hversu vel
aðilum tekst að vekja atygli okkar á vöru sinni.
Hafið þið séð diet - pepsi
auglýsingarnar sem hanga víðsvegar? Þær virðast bara vera skapaðar
fyrir mig! Með því að skýrskota til sjónvarpsþátta eins og Friends
(kveðja til allra sem voru með Rachel klippingu) og Sex and the
City (með því að tala um Manolo Blahnik) tekst þeim algerlega að ná
athygli minni!
Hvað er að! Hversu sorgleg er
ég! (Vinsamlegast svarið þessu ekki. Ég setti engin spurningarmerki
fyrir aftan)!
Á ég að segja ykkur hvað er að!
Ég er kvenkyns kaupandi á aldrinum 25-40 sem reynir að hugsa um
heilsuna og er með augu sem fara á allt sem er
bleikt.
Það fyrirtæki sem bjó til þessar auglýsingar á
hrós skilið því þeim tekst að ná athygli minni! Ef diet pepsi væri
bara ekki svona ógeðslega óhollt þá myndi ég kannski bara fara og
kaupa mér flösku!
»
29.09.2006 15:10:48 / sollak
Eins og mörg ykkar vita þá er ég að reyna að gera B.S. ritgerð. Og
þegar ég segi "reyna" þá meina ég "REYNA" í bókstaflegri merkingu.
Mér finnst núna verkefnið mitt bara ekki nógu spennandi og langar
helst að finna mér bara eitthvað glænýtt sem ég hef áhuga á! Ekki
það að ég hafi ekki áhuga á því sem ég er að skrifa um en þetta er
bara ekki að smella saman hjá mér! Kvart, kvart, kvart!
Skip á morgun! En heilinn minn þarf að vera stilltur inn á þessa
ritgerð og það er því ekki að hjálpa! Seinasta skip sumarsins með
um 2600 manns innanborðs! Vonandi helst veðrið gott því ég má ekki
vera að því að fá kvef!
Jæja nóg af kvarti! Best að halda áfram!
»
28.09.2006 22:37:10 / sollak
Myrkrið mikla á sér stað í augnablikinu! Við erum bara heima og
horfum út um gluggann! Getum ekki sagt að það sé mikið myrkur þar
sem allir virðast vera með kveikt á ljósunum hjá sér! Og hvað er
málið með að allir séu að taka myndir! Halló Breiðhyltingar, takið
allavega flassið af þegar þið eruð að reyna að taka myndir af
myrkrinu
»
Síður:
1 2 3 ...
16